Heim    Námskeið    Stundarskrá    Fréttir    Myndir    Þjálfarar    Verðlisti    Vörur    Jimmy

 
 

Bardagalistirnar Kick box og Muay thai boxing eiga sér áralanga hefð og samanstendur af spörkum, kýlingum, hnéspörkum, olnbogahöggum, þolæfingum, teigum, vörnum og meðhöndlun vopna.

Þessar áhrifaríku bardagaaðferðir eru kenndar í öruggu umhverfi  undir leiðsögn reyndra kennara.

Bardagalistir þessar eru kenndar með vel skipulögðu fyrirkomulagi sem tryggir stigvaxandi árangur.

Þér verður kennt að verja sjálfan þig og öðlast sjálfstjórn til að virða aðra nemendur og aðeins nota þekkingu þína til eigin varna.

Kick box og Muay thai boxing hjálpar þér að komast í gott form, bæta þolið, öðlast liðleika og kraft.

Allir tímar eru vel skipulagðir til þess að mæta hámarks kröfum. Þess vegna leggjum við mikið í góða upphitun til þess að koma í veg fyrir óþarfa meiðsli.


Síðasliðin átján ár ( síðan 1993) hafa nemendur á Íslandi fengið þjálfun hjá Jimmy Ronald Routley í margvísilegum bardagaíþróttum.

Nemendur hafa náð frábærum árangri og hafa nokkrir af þeim tekið þátt í Evrópumótum erlendis og hérna heima, má þá nefna þann góða árangur á heimsmeistara mótinu í Corfu Grikklandi 2004, en þar hreftum við fyrsta sæti í Muay thai og annað sæti í Kick boxing, þar var Jimmy valinn besti þjálfari ársins.

Kick box og Muay thai eru þær íþróttir sem þú þarft á að halda til að komast í það form sem þig hefur alltaf dreymt um.

 

Við bjóðum upp á


Body Sculpture

Kick Box B

Kick Box C

Barna Kick Box

Muay Thai

Kung Fu

Box

M.M.A

Fight Club






Kennarar


Jimmy Routley






































Kick boxing og Muay thai boxing.

Body Sculpture


Body Sculpture er frábært námskeið fyrir konur á öllum aldri, konur sem vilja léttast, stirkjast og líta vel út, og hvaða kona vill það ekki.
Námskeiðin eru á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, kl:06:00 á morgnana og kl:18:00 á kvöldin.
Það eru tveir tímar á mánuði extra sem eru á mismunandi tímum sem koma fram á heimasíðu Pumping Iron í fréttum þá fer hópurinn í gönguferðir eða fjallgöngur.

Í Body Sculpture eru fjölbreyttar æfingar, unnið er að styrkja allan líkaman, tíminn skiptist í lóðarþjálfun, gólfæfingar, teigur, jóga og pilates.

þrautreyndur þjálfari veitir ráðgjöf um matarræði. Mælingar, vigtun og aðhald  eru í hverri viku.